Hvar og hvenær ætla Mjölnismenn að hittast fyrir útileikinn okkar á Fimmtudaginn 16. maí á móti KR ?


Núna á sunnudaginn næsta fá Þórsarar eftir næstum tveggja ára bið heimaleik í Pepsi deildinni. Liðið sem Þórsarar mæta er ekki af verri endanum, en það eru sjálfir íslandsmeistarar síðasta árs FH sem mæta. Leikurinn er hluti af annarri umferð tímabilsins en bæði lið hafa nú þegar spilað einn leik nú þegar. FH sigraði Keflavík 2-1 síðasta mánudag og Þórsarar fengu skell gegn Breiðablik á sunnudaginn 4-1 í Kópavogi.

Mjölnismenn hafa spáð fyrir um lokastöðuna í deildinni í ár.
Stjórnarmenn Mjölnismanna kusu hver fyrir sig og svo er heildarstig tekin saman.
Smellið á lesa meira til að sjá spánna.

Mjölnismenn hvetja alla til að taka þátt í fantasy leik Fótbolta.net
En Mjölnismenn eru með deild þar. Skráið ykkur inn, farið í deildir, ganga í deild og skrifið eftirfarandi kóða inn: aqbDRDu4xr.
Hvetjum alla Mjölnismenn til að vera með!





